KA og Víkingur R. gerðu í kvöld 1-1 jafntefli á Akureyrarvelli í þriðju umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Egill Atlason kom Víkingum yfir á 35. mínútu en markið kom eftir klaufagang í öftustu línu KA-manna. David Disztl jafnaði metin fyrir KA á 75. mínútu er hann skoraði af stuttu færi inn í teig og þar við sat. Víkingur R. fer í fimm stig í öðru sæti deildarinnar en KA hefur fjögur stig um miðja deild.