Íþróttamaður Akureyrar 2012

Knattspyrnukonan Arna Sif Ásgrímsdóttir var í kvöld útnefnd íþróttamaður Akureyrar 2012. Arna var fyrir skömmu útnefnd íþróttamaður Þórs 2012.

Í öðru sæti um titilinn íþróttamaður Akureyrar 2012 varð Rannveig Oddsdóttir UFA og í þriðja sæti varð Guðmundur S. Guðlaugsson Bílaklúbbi Akureyrar.

Arna Sif Ásgrímsdóttir er fædd 1992. Við tímamót og miklar breytingar á liði Þórs/KA eftir keppnistímabilið 2011 ákvað Arna Sif að halda tryggð við uppeldisfélagið og standa vaktina áfram. Veturinn notaði hún skynsamlega til að efla sig og bæta með velgengni liðsins efst í huga. Var til fyrirmyndar innan og utan æfinga og stefndi leynt og ljóst að því að sigla liði sínu í efsta sætið.

Arna Sif tók við stöðu fyrirliða liðsins og tók á sig nýtt hlutverk með nýrri stöðu á vellinum. Hún færði sig af miðjunni yfir í hjarta varnarinnar, sem síðan fékk á sig langfæst mörkin í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Hún spilaði einnig hverja einustu mínútu í deildinni og skoraði 2 mörk. Fyrirliðinn gerði sér lítið fyrir og sigldi liði sínu örugglega í höfn og landaði fyrsta Íslandsmeistaratitli sem Akureyringar hafa eignast í knattspyrnu kvenna.

Arna Sif Ásgrímsdóttir er fyrirmyndarleikmaður og leiðtogi sem þrátt fyrir ungan aldur hefur spilað 114 leiki í efstu deild og bikarkeppnum fyrir Þór/KA og skorað í þeim 22 mörk. Þar fyrir utan hefur hún leikið 39 landsleiki með U23, U19 og U17 og skorað í þeim 5 mörk ásamt því að vera komin í 40 manna A-landsliðshópinn.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast