Íslenska Gámafélagið hefur opnað nýtt og glæsilegt húsnæði að Réttarhvammi 3 á Akureyri. Með nýju húsnæði verður öll aðstaða til flokkunar á endurvinnanlegu hráefni til fyrirmyndar.Í tilefni af opununinni mun Íslenska Gámafélagið spara bæjarbúum sporin og bjóða Græna tunnuna fría í þrjá mánuði án nokkura skuldbindinga.
Áhugasamir geta haft samband við starfsmenn Íslenska Gámafélagsins í síma 577 5757 eða farið á heimasíðu fyrirtækisins www.gamur.is Íslenska Gámafélagið var valið í könnun VR Fyrirtæki ársins árið 2010 og 2011 og var valið í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja árið 2012. Könnun VR segir til um hvar best sé að vinna, hvar er besti starfsandinn og hvar líður starfsfólki best. Hjá Íslenska Gámafélaginu á Norðurlandi starfa alls 10 starfsmenn og með nýrri starfsstöð á Norðurlandi verður aðstaðan mun betri fyrir bæði starfsmenn og viðskiptavini Íslenska Gámafélagsins, segir í tilkynningu