Íslandsmeistari í skák til liðs við Goðann á Húsavík

Þröstur Þórhallsson
Þröstur Þórhallsson

Þröstur Þórhallsson, stórmeistari og nýbakaður Íslandsmeistari í skák, hefur gengið til liðs við þingeyska skákfélagið Goðann, sem hefur bækistöðvar sýnar á Húsavík.  Félagar í Goðanum hafa fagnað þessu mjög og á heimasíðu félagsins er meðal  hannar að finna eftirfarandi: "Vart þarf að orðlengja að félaginu er mikill akkur í liðsinni svo öflugs skákmeistara, ekki síst í ljósi þess að hin eitilharða A-sveit Goðans þreytir frumraun sína meðal bestu skáksveita landsins í 1. deild Íslandsmótsins á næstu leiktíð." Síðan er haft eftir Hermanni Aðalsteinssyni, formanni Goðans: „Okkur er í senn heiður og styrkur að komu Íslandsmeistarans í okkar raðir og hlökkum til að njóta snilldar hans, reynslu og þekkingar. Með inngöngu Þrastar í Goðann færumst við nær því markmiði að festa Goðann í sessi meðal fremstu skákfélaga á landinu.“

Nýjast