Íslandsklukkunni við Háskólann á Akureyri á Sólborg verður hringt 150 sinnum næstkomandi föstudag kl. 14:00. Í tilefni þess að Akureyrarbær fagnar 150 ára afmæli sínu á þessu ári og Háskólinn á Akureyri fagnar 25 ára afmæli sínu, verður staðið fyrir sameiginlegum afmælisviðburði við Íslandsklukku, útlistaverk eftir Kristinn E. Hrafnsson. Hópur fólks úr háskólasamfélaginu og bæjarfélaginu mun skiptast á að hringja klukkunni þessi 150 slög og lauslega er gert ráð fyrir að hringingin taki um 40 mínútur.
Allir eru hjartanlega velkomnir til þess að fylgjast með og njóta sameiginlegrar stundar þar sem afmælum Akureyrarbæjar og HA er fagnað á táknrænan hátt.