Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri á Icelandair hótel á Akureyri telur að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti á gistingu hér á landi verði rothögg á greinina. Aðgerð af því tagi þýðir einfaldlega að Ísland verðleggur sig út af kortinu, ferðamönnum mun fækka og þar með tekjur ríkissjóðs, segir hún. Miklu hafi verið kostað til að kynna land og þjóð og Ísland sem ákjósanlegan vetraráfangastað. Sú kynning hafi verið sameiginlegt verkefni ríkis og greinarinnar, og mér finnst því skjóta skökku við að loksins þegar hillir undir að einhver árangur náist, þá er þessari hækkun skellt á, en hún mun skila sér beint út í verðlagninguna, segir Sigrún Björk.
Þrátt fyrir að landið sé talið spennandi áfangastaður sé dýrt að ferðast til landsins og dvelja þar og þessi hækkun er því afar slæm fyrir greinina. Ef ferðaþjónustan teldi að hægt væri að hækka verð um 18% þá væri löngu búið að því en við höfum verið að potast í hækkunum á milli 3-5 % á ári undanfarið út af varnaðarorðum þeirra ferðaheildsala sem eru að selja ferðir hingað, segir hún.
Fyrr í sumar birti Hagstofan tölur um gistinætur á hótelum og kom fram að minnst aukning varð á Norðurlandi eða 4% á meðan t.d. aukning á Austurlandi milli júní árið 2011 og sama mánaðar í ár var 19%. Sigrún Björk telur að skýringu þar á sé að finna í auknu framboði gististaða, t.d. hafi 37 herbergi bæst við í júní á Icelandair hótelinu og Backpackers hostelið kom inná markaðinn. Þá hafi fjöldi gistimöguleika í heimagistingu og á gistiheimilum bæst við í fjórðungnum á árinu þannig að ferðafólk hafi dreifst á fleiri staði. Tölur frá Hagstofunni séu bara fyrir hótel og það geti verið að í lok árs þegar teknar eru saman tölur fyrir bæði hótel og gistiheimili að málin horfi eitthvað öðruvísi við.