Öldungaráð hefur skorað á Akureyrarbæ að hafa frumkvæði að því að stofna nefnd til að skipuleggja betri dagþjónustu og uppbyggingu þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK kynnti tillögu á fundi öldrunarráðs nýverið. Auk fólks frá velferðarsviði og umhverfis- og mannvirkjasviði bæjarins þurfi að vera í nefndinni fulltrúar frá ríkinu og Heilsuvernd.
Eitt af lykilhlutverkum sveitarfélaga er að skapa börnum og ungmennum umhverfi þar sem þau fá tækifæri til að þroskast og blómstra, óháð getu, þroska eða áhugasviðum hverju sinni. Þetta á sérstaklega við um íþrótta- og tómstundastarf, sem á að vera vettvangur gleði, hreyfingar, félagslegra tengsla og uppbyggingar á sjálfstrausti.
Nú styttist óðum í lok leiðsögunámsins hjá SMHA og nemendur farnir að hlakka til að útskrifast eftir krefjandi og lærdómsríkt nám. Aðeins ein staðlota er eftir og markar hún lokasprettinn áður en náminu lýkur formlega.
Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð. Með endurnýjuninni er staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur.
Sex nemendur í 2. bekk í matreiðslunámi í VMA voru í síðustu viku í námsferð í verknámsskóla í Móstoles í útjaðri Madríd á Spáni. Ferðin var styrkt af Erasmus+ styrkjaáætlun ESB og einnig styrktu hana Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi og Kjarnafæði-Norðlenska. Með í för voru kennararnir Ari Hallgrímsson og Harpa Friðriksdóttir, Unnur Ása Atladóttir sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í VMA og matreiðslumeistarinn Einar Gauti Helgason á Vitanum mathúsi á Akureyri.
Hlynur Jóhannsson, íþróttakennari, bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri, leiðir lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Inga Dís Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi er í öðrui sæti. Þau tvö skipuðu einmitt þessi sömu sæti við sveitarstjórnarkosningarnar fyrir tæpum fjórum árum
Egill Einarsson, verslunarmaður skipar þriðja sæti, Katrín Vilhjálmsdóttir, snyrtifræðingur og sjúkraliði það fjórða. Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri er í fimmta sæti og í þvi sjötta Sigurbjörg Níelsdóttir, skrifstofustjóri.