ÍR-ingar fóru mikinn á 47. bikarkeppni frjálsíþróttasambands Íslands sem fram fór á Þórsvelli sl. helgi. ÍR sigraði þrefalt; í karla-og kvennaflokki og í samanlagðri keppni með 184 stig. FH hafnaði í öðru sæti í samanlagðri keppni með 159 stig. Lið Norðurlands hafnaði í þriðja sæti í samanlagðri keppni með 147,5 stig. Liðið hafnaði einnig í þriðja sæti í karlaflokki en varð í öðru sæti í kvennaflokki.
Hjá ÍR var Einar Daði Lárusson allt í öllu en hann sigraði í 110 m grindahlaupi, hástökki og stangarstökki og var í sveitum ÍR sem unnu bæði boðhlaupin. Í liði UFA var það Hafdís Sigurðardóttir sem var í aðalhlutverki en hún var með fullkomin árangur í sínum einstaklingsgreinum. Hún sigraði í 100, 200 og 400 m hlaupi auk þess að vinna langstökkið og safnaði alls 24 stigum fyrir Norðurland. Hún var einnig í boðhlaupssveitum Norðurlands sem hafnaði í þriðja sæti í 4x100 m hlaupi og í öðru sæti í 1000 m hlaupi.
Af öðrum árangri keppenda Norðurlands má nefna að Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 200 m hlaupi karla og hafnaði í öðru sæti í 400 m hlaupi. Þá sigraði Sigurbjörn Árni Arngrímsson í 3000 m grindahlaupi. Hjá FH safnaði Sveinbjörg Zophoníasdóttir 26 stigum en hún sigraði í hástökki og kúlvarpi og hafnaði í öðru sæti í þrístökki og langstökki. Þá varð hún í þriðja sæti í 100 m grindahlaupi.