Ingibjörg Þórðardóttir gefur kost á sér í annað sætið á lista VG

Ingibjörg Þórðardóttir
Ingibjörg Þórðardóttir

 Ingibjörg Þórðardóttir kennari við Verkmenntaskóla Austurlands hefur tilkynnt þátttöku í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi og gefur hún kost á sér í annað sætið.

„Frá unga aldri hef ég haft áhuga á stjórnmálum en hóf þó ekki beina þátttöku á þeim vettvangi fyrr en fyrir þremur árum þegar ég tók sæti í kjördæmisráði VG í Norðausturkjördæmi. Jöfnuður og náttúrvernd eiga að vera grundvallarhugtök í íslenskum stjórnmálum. Mikilvægt er að jafna stöðu fólks á sem flestum sviðum. Allir eiga að hafa jafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og þeirri menntun sem þeir kjósa.  Nauðsynlegt er að fólk átti sig á því að óspillt náttúra er ekki það sama og vannýtt náttúra.

Jafnrétti kynjanna er mín ástríða. Ég tel að besta tækifærið til að ná fram jafnrétti kynjanna liggi í menntakerfinu. Skipulögð og markviss jafnréttisfræðsla á öllum skólastigum á að vera sjálfsögð og eðlileg,“ segir Ingibjörg í tilkynningu.

 

Nýjast