Illmögulegt fyrir fjölskyldufólk að bregða sér í land

Frá Grímsey/mynd Hörður Geirsson
Frá Grímsey/mynd Hörður Geirsson

Jóhannes Henningsson formaður hverfisráðs Grímseyjar segir að fargjöld sem Grímseyingar þurfi að greiða fyrir ferju og flug hækki stöðugt og sé nú svo komið að illmögulegt sé fyrir fjölskyldufólk að fara á milli lands og eyja.

 Hann segir að dýrustu fargjöld með flugi kosti ríflega 14 þúsund krónur en vissulega séu á stundum í boði fargjöld á lægra verði. Algengt verð fyrir flugsæti sé á bilinu 9-12 þúsund krónur.

„Og það sér hver maður hver útgjöldin verða þurfi fjögurra manna fjölskylda að bregða sér í land,“ segir Jóhannes.

„Maður heyrir á fólki að það hefur af þessu miklar áhyggjur, enda þurfa eyjaskeggjar að sækja ýmsa nauðsynlega þjónustu í landi af og til.“

Gjaldskrá fyrir flutninga milli lands og eyjar hefur einnig hækkað stöðugt að sögn Jóhannesar. Hann segir að íbúar hafi eftir sameiningu við Akureyrarbæ vænst þess að bærinn myndi leggja þeim lið í baráttu fyrir t.d. afsláttarkjörum, en svo hefði ekki verið.

 Hann sagði Grímseyinga ekki búa við nein kjör af því tagi en myndu gjarnan vilja að þau stæðu þeim til boða.

 „Okkur þykir ekki óeðlilegt að heimafólk gæti keypt ferðir á milli með afsláttarkjörum,“ segir hann en bætir við að íbúar séu sáttir við samgöngur til og frá eyjunni, bæði í lofti og sjó.

Nýjast