Helena Karsdóttir lögfræðingur á Akureyri íhugar a bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, sem efnt verður til í nóvember. Já, það er rétt ég er að íhuga framboð, en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir, enda nægur tími til stefnu, sagði Helena í samtali við Vikudag í morgun. Hún skipaði síðast fimmta sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í kjördæminu. Flokkurinn er nú með þrjá þingmenn og hafa þeir allir lýst yfir vilja til að sitja áfram á Alþingi.Prófkjörið verður haldið um miðjan nóvember og verður þá raðað í sex efstu sætin á framboðslistanum.Framboðsfrestur rennur út um miðjan oktober.