ÍBV endaði sigurgöngu Þórs/KA

ÍBV varð fyrst liða til að leggja Þór/KA að velli í sumar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu er liðið hafði betur, 4-1, á Þórsvelli í dag. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir eftir tuttugu mínútna leik og Shaneka Gordon kom gestunum í 2-0 tíu mínútum síðar. Vesna Smiljkovic kom ÍBV í 3-0 skömmu áður en flautað var til leikhlés og staða Eyjastúlkna vænleg. Þór/KA gafst ekki upp og Kayle Grimsley minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik en Eyjastúlkur gerðu endanlega út um leikinn níu mínútum fyrir leikslok er Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði fjórða mark ÍBV.

Sanngjarn sigur hjá ÍBV sem var betra liðið í dag. Þór/KA hefur áfram sextán stig á toppnum en ÍBV er komið í annað sæti deildarinnar, í það minnsta tímabundið, með fimmtán stig.

Nýjast