Ríki og sveitarfélög hækkuðu gjaldskrár og neysluskatta um áramótin, þessar hækkanir skila sér beit út í verðlagið og áhrifa þeirra gætir í verðbólgutölum janúarmánaðar.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur ákveðið að hækka ekki þjónustugjöld í hreppnum eins og víða annars staðar hefur verið gert. Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin í ljósi traustrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Íbúum hreppsins hefur fjölgað, sem þýðir að tekjurnar hafa aukist og sem betur fer hefur atvinnuástandið verið gott. Útsvarstekjurnar voru hærri á síðasta ári en við gerðum ráð fyrir, auk þess sem fjárhagsleg staða okkar er traust. Við gerð fjárhagsáætlunar var því ákveðið að hækka ekki þjónustugjöld á þessu ári, svo sem fasteignagjöld, sorphirðugjald, vistun á leikskóla og svo framvegis. Öll þjónustugjöldin verða sem sagt óbreytt frá fyrra ári.
Hún segir að þessi ákvörðun hafi hlotið jákvæð viðbrögð meðal íbúanna.
Já, það heyrist mér, óbreytt þjónustugjöld koma vonandi öllum til góða. Auðvitað hefðum við ekki verið í vandræðum með að nýta auknar tekjur til góðra verka, en sveitarstjórnin var einhuga um að láta íbúana njóta velgengninnar á undanförnum misserum með þessum hætti. Ég tel að þessi ákvörðun hafi verið skynsamleg.
karleskil@vikudagur.is