Íbúar Akureyrar urðu 18.000 talsins þann 29. maí síðastliðinn þegar Haukur Leó Sveinsson, sonur Sveins Arnarssonar og Elísabetar Þórunnar Jónsdóttur, kom í heiminn. Af því tilefni munu Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, afhenda drengnum og foreldrum hans gjafir á heimili þeirra á morgun miðvikudag.