Í takt við hraðferð Odds í umdeildu máli

Ólafur Jónsson.
Ólafur Jónsson.

„Málið snýst fyrst og síðast um það hversu óvarlega menn ætla að fara með undanþáguákvæði nýrra skipulagslaga þegar andi laganna er klárlega að hafa sem víðtækast samráð við íbúa og góða kynningu á málum,“ segir Ólafur Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks á Akureyri. Í grein sem Ólafur og Guðmundur B. Guðmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokks skrifuðu og birtist í Vikudegi nýlega, gagnrýna þeir að bæjarráð hafi samþykkt tvær tillögur að breytingu á aðalskipulagi án þess að senda þær í hefðbundið kynningar- og athugunarferli. 

Tillögurnar snúast um götutengingar, annars vegar tengingu væntanlegrar Dalsbrautar við Lundarskóla og íþróttasvæði KA og hins vegar tengingu Bröttusíðu við væntanlega tengingu Borgarbrautar. Þeir Ólafur og Guðmundur telja samþykkt bæjarráðs varðandi þessar tengingar séu ekki í anda skipulagslaga. Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans og formaður framkvæmdaráðs undraði sig á þessum málflutningi og segir umræddar umferðartengingar hafa verið í skipulagi um langa hríð, um sé að ræða einfaldar breytingar og Ólafur og Guðmundur séu að sá tortryggnisfræjum meðal fólks með málflutningi sínum.

„Ég bendi á að í deiliskipulagsferlinu voru uppi tvær innkeyrslur að Lundarskóla og þannig var tillagan kynnt á samráðsfundi með íbúum, en síðan þegar hún fór í auglýsingu var önnur innkeyrslan dottin út. Þegar auglýsing um tillöguna var lögð fram í bæjarstjórn 18. október síðastliðinn vildu fjórir bæjarfulltrúar að deiliskipulagstillagan færi aftur til skipulagsnefndar til umræðu og afgreiðslu til þess að skýra einmitt þetta atriði,“ segir Ólafur.

Hann segir viðbrögð Odds Helga í takt við þá hraðferð sem hann hafi verið á í umdeildu máli, „eftir að hann sveik stórakosningaloforðið um að leggja Dalsbraut í stokk við Lundarskóla.“

Nýjast