Í fangelsi og sviptur ökuréttindum

Héraðsdómur Norðurlands eystra.
Héraðsdómur Norðurlands eystra.

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til 30 daga fangelsisvistar og sviptur ökuréttindum ævilangt vegna ítrekaðra umferðarlagabrota. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra á dögunum. Maðurinn keyrði undir áhrifum áfengis og fíkniefna aðfaranótt laugardagsins 2. júní sl. frá Siglufirði áleiðis til Akureyrar en var stöðvaður af lögreglu á Hafnarbrautinni á Dalvík.

Þetta var í þriðja sinn á átta árum sem hinn ákærði gerist sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana-og fíkniefna. Fram kemur í dómnum að sá seki eigi langan sakaferil að baki vegna fíkniefnalaga-, umferðarlaga- og hegningarlagabrota. Hann mun einnig þurfa að greiða 150 þúsund krónur í sakarkostnað.

Nýjast