Hvetja nýtt þing til að opna Neyðarbrautina áður en mannslíf tapast

Sjúkraflug Mýflugs þurfti að lenda á Akureyri með sjúkling vegna þess að Neyðarbrautin svokallaða í …
Sjúkraflug Mýflugs þurfti að lenda á Akureyri með sjúkling vegna þess að Neyðarbrautin svokallaða í Reykjavík er lokuð.

Beina þurfti sjúkraflugi frá Hornafirði til Akureyrar þar sem Reykjavíkurvöllur hefur verið ófær í dag. Flugmálafélag Íslands segir sjúkraflug liggja niðri af mannavöldum.

„Engin sjúkraflugvél gat lent á vellinum þar sem búið er að loka þeirri flugbraut sem nýtist í stormi úr suðvestri og er í daglegu tali nefnd Neyðarbrautin. Brautin er þó enn á sínum stað og í góðu ástandi. Aðeins stjórnmálamenn standa í vegi fyrir lendingum á brautinni,“ segir í ályktun sem stjórn félagsins sendi á fjölmiðla í kvöld.

Í ályktuninni kemur jafnframt fram að meðlimir stjórnarinnar muni ekki eftir jafn alvarlegri stöðu í flugsamgöngum innanlands og hafi komið fram í dag. Félagið kallar eftir því að Neyðarbrautin svokallaða verði opnuð á ný. Alþingi geti tekið ákvörðun um það strax.

„Ljóst er að varnaðarorð flugstjóra og sérfræðinga í flugmálum áttu við full rök að styðjast og að stjórnmálamenn hafa gert alvarleg mistök með því að loka Neyðarbrautinni. Flugmálafélagið hvetur nýtt þing til þess að bregðast við tafarlaust áður en það verður um seinan og án þess að það hafi þá kostað mannslíf.“

Nýjast