Hvað veistu um virkjanir á Íslandi?

Orkusetur hefur nú smíðað gagnvirkt netkennsluforrit um virkjanir sem hafa yfir 10 MW af uppsettu afli. Forritið er afar einfalt í notkun og einungis þarf að nota tölvumúsina við lausn verkefna. Það ættu allir að taka prófið og fá raunverulega úr því skorið hvað þeir vita í raun um virkjanir á Íslandi. Betri þekking hjálpar okkur að taka upplýstari ákvarðanir. Í forritinu má finna yfirlitskort og helstu tölfræðiupplýsingar um hverja virkjun en meginhluti forritsins snýst þó um gagnvirkar æfingar og próf. Í æfingunum koma spurningar og einungis þarf að velja ákveðið svar með því að smella á hnapp eða hnappa hægra megin á skjánum. Ef ekki tekst að svara spurningunni í þremur tilraunum þá kemur rétta svarið upp. Einnig er hægt að spreyta sig í prófi og koma þá nokkrar spurningar í röð og viðkomandi fær að lokum einkunn fyrir árangurinn. Ef keppni er valin þá fær notandinn að svara eins mörgum spurningum og hann getur þangað til að hann klikkar. Í gagnagrunninum eru hátt í tvöhundruð miserfiðar spurningar, samkvæmt upplýsingum Sigurðar Inga Friðleifssonar framkvæmdastjóra Orkuseturs. Forritið má finna á heimasíðu Orkuseturs  www.orkusetur.is

Nýjast