Hvað er að gerast á Hafnarbakkanum?

Kynningarmynd Rutar Sigurðardóttur fyrir Sæskrímslin.
Kynningarmynd Rutar Sigurðardóttur fyrir Sæskrímslin.

Á miðvikudag birtast ótrúlegar kynjaverur við Húsavíkurhöfn þegar sirkuslistahópurinn Hringleikur og leikgervastúdíóið Pilkington Props taka höndum saman í nýju, íslensku götuleikhúsverki fyrir alla fjölskylduna.

,,Hvað er að gerast á hafnarbakkanum? Fréttir hafa borist af því að togari á veiðum rétt fyrir utan landgrunnið hafi fengið risavaxna og áður óþekkta lífveru í trollið. Skömmu síðar varð hann vélarvana og sendi út neyðarkall. Togarinn hefur nú verið dreginn í höfn. Á meðan beðið er eftir viðbrögðum vísindamanna við þessu furðufyrirbæri gefst almenningi einstakt tækifæri til þess að berja ferlíkið augum. Eru sæskrímsli úr þjóðsögum okkar komin fram í dagsljósið og hvaða skilaboð færa þau okkur,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.

Sæskrímslin eru nýtt íslenskt götuverk af stærri gerðinni sem byggja á íslenskum þjóðsagnaarfi. Sirkuslistahópurinn Hringleikur og leikgervastúdíóið Pilkington Props standa að verkinu ásamt MurMur Productions en verkið er hluti af Listahátíð í Reykjavík, sem einnig er meðframleiðandi verksins.

Sæskrímsli, sprottin úr þjóðsagnaarfi Íslendinga, munu lifna við og birtast áhorfendum á hafnarbakkanum í formi stórra leikgerva sem vakin eru til lífs af íslensku sirkuslistafólki auk hóps ungmenna frá hverjum stað sem sýnt er á. Hafgúa tekur yfir togara, hópur fjörulalla leika lausum hala, skeljaskrímsli gengur um með hringlandi brynju sína og vökult auga hinnar risastóru sæskrímslamóður fylgist vel með. 

 

Ljósmynd: Listahátíð í Reykjavík/Haukur Sigurðsson.

 

Verkið er unnið í fjölbreyttu samstarfi við ólíka hópa. Við upphaf verksins var haldin Sæskrímslaráðstefna á Skrímslasetrinu á Bíldudal þar m.a. þjóðfræðingar og sjávarlíffræðingar veltu fyrir sér tilvist sæskrímsla. Börn víða um land voru þátttakendur í listrænni rannsókn og við undirbúning verkefnisins. Skrímslasmiðjur voru haldnar í völdum landshlutum í samstarfi við List fyrir alla þar sem börn, í samstarfi við listafólk og þjóðfræðinga, útfærðu hugmyndir um eiginleika og útlit skrímslanna. Hugmyndir barnanna voru svo nýttar beint inn í listræna úrvinnslu verksins. Slíkar smiðjur voru t.d. haldnar á Húsavík. Á hverjum stað taka ungmenni þátt í flutningi verksins þar sem þeim gefst færi á að kynnast möguleikum sirkuslista með sérstökum vinnusmiðjum fyrir sýninguna sjálfa.  

Aðgangur er ókeypis og hefst klukkan 17:15. Verkið er að mestu flutt án orða svo það er aðgengilegt fyrir öll, óháð tungumáli.

Að sýningunni lokinni verður boðið upp á opna sirkussmiðju þar sem börn og fullorðnir geta spreytt sig í ýmiskonar sirkuslistum.

Gestir hafnarinnar geta byrjað á því að svamla í sundlauginni eða skoðað Arctic Creatures sýninguna í Hvalasafninu, tekið þátt í sædýraskrímsla-grímugerð í Fab Lab Húsavíkur klukkan 15,  notið matar og miðnæturopnunar í Sjóböðunum, svo eitthvað sé nefnt. Bókasafnið á Húsavík hefur í tilefni sýningarinnar stillt upp skrímslakosti sínum gestum til ánægjuauka.

 


Athugasemdir

Nýjast