Hulda og Viktor valin íþróttafólk ársins

Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson. Mynd/Þórir Tryggvason.
Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson. Mynd/Þórir Tryggvason.

Kraftlyftingafólkið Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson voru valin íþróttafólk ársins 2018 á Akureyri en valið var kunngjört í Menningarhúsinu Hofi í gærkvöld. Þetta var í 40. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður. Alls hlutu 13 íþróttakonur og 15 íþróttakarlar úr röðum aðildarfélaga ÍBA atkvæði til kjörsins. Á athöfninni veitti frístundaráð viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla og sérstakar heiðursviðurkenningar auk þess sem Afrekssjóður Akureyrarbæjar veitti afreksstyrki og aðildarfélögum styrki fyrir landsliðsmenn.

Íþróttakona Akureyrar er Hulda B. Waage úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Hulda hefur sett fjölmörg Íslandsmet á árinu. Hennar besti árangur 2018 var 230.0kg hnébeygju, 147.5kg bekkpressu, 180kg í réttstöðulyftu og 550kg í samanlögðu. Hún varð m.a. Íslandsmeistari kvenna í kraftlyftingum og stigahæsta Kraftlyftingakona ársins 2018. Í 2. sæti varð Silvía Rán Björgvinsdóttir hokkíkona úr Skautafélagi Akureyrar og í 3. sæti Martha Hermannsdóttir handknattleikskona úr KA/Þór.

Íþróttakarl Akureyrar 2018 var kjörinn Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Viktor hefur sett fjölmörg Íslandsmet á árinu. Hans besti árangur 2018 er
387.5kg hnébeygju, 307.5kg bekkpressu, 322.5kg í réttstöðulyftu og 1010kg í samanlögðu. Viktor varð m.a. Íslandsmeistari karla í kraftlyftingum og stigahæsti Kraftlyftingamaður ársins 2018. Í 2. sæti varð Filip Szewczyk blakmaður úr KA og í 3. sæti varð Alexander Hinrikssonjúdómaður úr KA.

Árni og Hrefna fengu heiðursviðurkenningar

Heiðursviðurkenningar Frístundaráðs hlutu þau Árni Óðinsson fv. Formaður Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fv. Formaður KA, bæði fyrir mikið og óeigingjarn starf í þágu íþrótta- og félagsmála á Akureyri. Frístundaráð veitti viðurkenningar til 15 aðildarfélaga vegna 190 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 16 einstaklingum afteksstyrki fyrir samtals rúmar 4 milljónir og 11 aðildarfélögum 1 milljón í styrki vegna 108 landsliðsmanna árið 2018.


Athugasemdir

Nýjast