Hugmynd um nýjan kirkjugarð í Naustaborgum velkist árum saman í kerfinu

Smári Sigurðsson forstöðumaður Kirkjugarða Akureyrar/mynd Margrét Þóra
Smári Sigurðsson forstöðumaður Kirkjugarða Akureyrar/mynd Margrét Þóra

Forsvarmenn Kirkjugarða Akureyrar hvetja til umræðu meðal bæjarbúa um hugmyndir um nýjan grafreit í Naustaborgum.  Svæði hér og hvar yrði bútað niður í smærri einingar fyrir grafreiti, en þar færi þá saman útivistarsvæði og grafreitur.  Þykir stjórnendum Kirkjugarðanna hægt ganga að koma hugmyndinni á framfæri, bæjaryfirvöld sópi málinu á undan sér og hver meirihlutinn á fætur öðru fresti umræðu og ýti málinu yfir á þann næsta.

„Okkur gremst hversu langan tíma þetta mál hefur verið að velkjast um í bæjarkerfinu, án umræðu  að því er við best vitum.  Fyrst var það lagt fram formlega hjá skipulagsyfirvöldum árið 2007 og enn er vandræðagangur í kringum það.  Dapurlegast er samt að enn hefur ekki farið fram nein vönduð umræða um hugmyndir okkar, menn sópa málinu sí og æ á undan sér,“ segir Smári Sigurðsson forstöðumaður Kirkjugarða Akureyrar. Tveir kirkjugarðar eru á Akureyri,  á Naustahöfða og í Lögmannshlíð, en sá fyrrnefndi verður 150 ára í sumar og mun eftir rúman áratug verða fullnýttur.

Í núgildandi aðalskipulagi sem gildir til ársins 2018 er gert ráð fyrir að nýr kirkjugarður verði í norðvesturhluta bæjarins,  ofan byggðar yst í Síðuhverfi, sunnan Lónsár. Smári segir að Kirkjugarðar Akureyrar hafi áður en aðalskipulagið var samþykkt sent inn athugasemd við staðsetninguna.  Á enn eldra skipulagi var gert ráð fyrir famtíðargrafreit í Lögmannshlíð.

Frá árinu 1997 hefur umræða verið um nýjan kirkjugarð nær þeim sem fyrir er á suðurbrekkunni, m.a. svo hægt sé að samnýta mannvirki og þjónustu sem þar er. Fram kom árið 2007 hugmynd um að staðsetja nýjan kirkjugarð í Naustaborgum, gera þar nokkra minni reit hér og hvar um borgirnar og samnýta útvistarsvæðið og grafreitinn.

Langt ferli

Nú sé hins vegar svo komið að brýnt sé að opna umræðuna, fá fram samræðu í samfélaginu um hvort bæjarbúum hugnist hugmyndin.  „Við viljum gjarnan að  íbúar bæjarins kynni sér hugmyndina og viljum í framhaldinu  heyra skoðanir þeirra. Það er að mínu mati brýnt að hefja umræðuna, garðurinn á Naustahöfða fyllist innan nokkurra ára og það getur tekið allt að 7 ár að taka nýjan kirkjugarð í notkun, undirbúningsferlið er langt,“ segir Smári. „Það er því miður áberandi í bæjarkerfinu að málum af þessu tagi sé ýtt á undan sér, þetta þykir ekki brýnt, enda þarf ákvörðun ekki að liggja fyrir á næstu mánuðum.  Skipulagsmál eru þó þess eðlis að horfa þarf lengra fram í tímann en til næstu eða þarnæstu viku, líta þarf fram á veginn og það þýðir að mínu mati ekki endalaust að sópa þessu á undan sér og í fang næsta meirihluta.“

Nýjast