Hreinsunarvika á Akureyri

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 11.-18. maí. Staðsetning gámanna verður á eftirtöldum stöðum:

  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð
  • Kaupangi
  • Hagkaup
  • Hrísalundi
  • Bónus við Kjarnagötu

Einnig er tekið við garðaúrgangi á gámasvæði við Réttarhvamm og í timbur- og garðaúrgangs móttöku Moltu við Ægisnes 1. Í samvinnu við hestamenn verða gámar fyrir rusl staðsettir í hesthúsahverfum bæjarins frá 11.–18. maí.

Akureyrarbær hefur stundum fengið sæmdarheitið “fegursti bær landsins” en til þess að hann verðskuldi það þurfa allir að leggjast á eitt og taka til í sínum ranni. Það er samfélagsleg skylda okkar sem í þessum bæ búum að ganga vel um og koma í veg fyrir sóðaskap sem hlýst af uppsöfnuðu rusli.

Með því að hreinsa rusl og snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan lóðarmarka, við næsta göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni, segir á vef bæjarins.

Opnunartímar gámasvæðis við Réttarhvamm:

Frá 16. ágúst til 15. maí:
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 18.00.
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.

Frá 16. maí til 15. ágúst:
Mánudaga til föstudaga kl. 13.00 - 20.00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.

 

Nýjast