Höttur lagði KA að velli, 2-0, er liðin áttust við á Egilstöðum í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. Garðar Már Grétarsson kom Hetti yfir eftir tuttugu mínútna leik og Elvar Þór Ægisson bætti við öðru marki heimamanna sjö mínútum síðar. Höttur fer með sigrinum upp í sjötta sæti með átta stig en KA hefur fimm stig í áttunda sæti.