Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Keahótela ehf., segir stefnt að því að koma á laggirnar nýjum hótelum á landsbyggðinni á næstu misserum. Við ætlum að bæta í. Markmiðið er að fjölga hótelum og stækka fyrirtækið. Það er hins vegar óvíst hvenær af því getur orðið og ég get ekki nefnt neinn ákveðinn tíma. En það mun gerast innan tíðar, segir Páll í samtali við Vikudag, en óvíst er hversu mörg hótel bætast í safnið.
Hvannir ehf., móðurfélag Keahótela ehf., rekur nú þegar fimm hótel á Norðurlandi og í Reykjavík; hin sögufrægu Hótel Kea á Akureyri og Hótel Borg í Reykjavík og einnig Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg við Mývatn og Hótel Björk í Reykjavík. Eins og við sögðum frá í síðasta blaði urðu eigendaskipti á Keahótelum á dögunum og var Páll einn af fimm kaupendum, en hann hefur verið framkvæmdastjóri þess frá upphafi og verður það áfram.
Eitt af betri sumrum
Páll segir mikið hafa verið um bókanir á hótelunum í sumar. Það er búið að vera nóg að gera á öllum vígstöðum og við erum að sjá eitt af okkar betri sumrum hjá fyrirtækinu. Undanfarin þrjú ár hefur verið mikill stígandi í þessu en þó ekkert stökk. Við erum búnir að halda þessum hæga stíganda sem hefur verið. Það er jafn og góður rekstur. Hann segist sjá mikla fækkun á innlendum gestum á hótelin og nefnir þar bensínverðið sem eina af helstu ástæðunum. Þetta hefur verið þróunin undanfarin tvö sumur. Þá segir hann ennfremur að búið sé að bóka töluvert á hótelunum fyrir haustið en meiri óvissa sé hins vegar með veturinn.