Höskuldur Þór 85 % Sigmundur Davíð 15 %

Höskuldur Þór Þórhallsson
Höskuldur Þór Þórhallsson

Áhugahópur um oddvita Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi lét Gallup skoða hvern íbúar Akureyrar og nágrennis vilja sem oddvita flokksins fyrir komandi alþingiskosningar, Höskuld Þórhallsson þingmann eða Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann.

Úrtakið var 1080 manns á Akureyri og nágrenni.

Sverendur voru 699, 560 tóku afstöðu og 139 tóku ekki afstöðu.

380 sögðust vilja að Höskuldur Þórhallsson fari fyrir framboðslistanum, eða 67,8 %

114 nefndu hvorugan, eða 20,4 %

66 sögðust vilja Sigmund Davíð Gunnlaugsson, eða 11,8 %

Ef miðað er við svör þegar annar hvor er nefndur, er Höskuldur með 85,2 % fylgi og Sigmundur Davíð 14,8 % fylgi.

Stuðningsmenn Höskuldar fagna þessari könnun en stuðningsmenn Sigmundar Davíðs segja óeðlilegt að kanna fylgið á afmörkuðu svæði.

Nánar er fjallað um könnunina í prentútgáfu Vikudags, sem kemur út í dag.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast