Til stóð í dag að Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins færu yfir þá stöðu sem upp er komin um framboðsmál flokksins í kjördæminu. Báðir setja þeir stefnuna á að fara fyrir framboðslista flokksins. Svo virðist sem Höskuldur njóti víðtæks stuðnings á Norðurlandi, sérstaklega á Eyjafjarðarsvæðinu, en hann hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að gefa fyrsta sætið eftir til Sigmundar Davíðs. Stuðningur við Höskuld er ekki eins afgerandi á Austurlandi.
Þrátt fyrir að til hafi staðið í dag að þingmaðurinn og formaðurinn ræddust við í dag, varð ekkert af slíkum fundi. Nei, því miður náðum við ekki að ræða saman í dag, en vonandi gerist það á næstu dögum, sagði Höskuldur Þórhallsson í kvöld. Hann segir að fundur hafi þó ekki verið ákveðinn. Framsóknarfólk sem Vikudagur hefur talað við í dag hefur miklar áhyggjur af stöðunni sem upp er komin. Þetta virðist vera stál í stál, sagði einn viðmælandi Vikudags. Höskuldur Þórhallsson vildi ekkert tjá sig nánar um stöðu mála.Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð, þrátt fyrir ítrekaðar tilaraunir.
karleskil@vikudagur.is