Holóttur vegur að Sjúkrahúsinu á Akureyri

Margar djúpar holur eru á veginum að sjúkrahúsinu.
Margar djúpar holur eru á veginum að sjúkrahúsinu.

Aðkoman að Sjúkrahúsinu á Akureyri er mjög ábótavant en margar djúpar holur eru í malbikinu á veginum sem liggur m.a. að slysadeild. Vikudagur hefur fengið fjölmargar ábendingar um ástandið á veginum og þykir ekki góðri lukku að stýra að aka um veginn með brotinn einstakling eða einhvern sem ekki þolir mikinn hristing. Undanfarin ár hefur verið reynt að fylla í holurnar til bráðabrigða með lélegum árangri og er malbikið ónýtt. Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir aðspurður um málið að unnið sé að varanlegum lagfæringum.

 „Þetta er auðvitað slæmt ástand en lagfæringar á veginum eru að komast á framkvæmdarsvið í samvinnu við Akureyrarbæ. Það er byrjað að mæla fyrir og merkja og núna verður þetta gert almennilega,“ segir Vignir og reiknar með að framkvæmdir hefjist strax á næstu dögum.

Nýjast