Hollvinir SAk safna fyrir nýjum öndunarvélum

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri.

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri hafa byrjað söfnun fyrir öndunarvélum fyrir gjörgæsludeildina. Á Facebooksíðu Hollvina SAk er fólk beðið einlæglega um styrk í þessari viðleitni. Þeir sem vilja/geta styrkt Hollvinasamtökin geta lagt inn á reikning 0565-26-10321 en kennitala er 640216-0500.

Þeir sem veikjast alvarlega af Covid-19 veirunni geta þurft að fara í öndunarvél. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru nú þrjár öndunarvélar til staðar en 26 á landinu öllu.


Athugasemdir

Nýjast