Hólfaskipting tekin upp í Hlíðarfjalli

Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Sökum fjölda smita vegna Covid-19 undanfarið hefur verið brugðið á það ráð að taka upp hólfaskiptingu í Hlíðarfjalli á  föstudögum, laugardögum og sunnudögum, fyrri og seinnipart. Opnunartími hefur jafnframt verið lengdur þessa daga.

Á föstudögum verður opið frá kl. 11-19, fyrra hólf verður frá kl. 11-14:30 og seinna frá kl. 15-19.

Á laugardögum og sunnudögum verður opið frá kl. 09:30-17, fyrra hólf frá kl. 09:30-13 og seinna frá kl. 13:30-17

Lyftumiðar fyrir þessa þrjá daga verða settir í sölu kl. 3 á miðvikudögum.

Fyrir þessa daga þarf að kaupa lyftumiðana á heimasíðu Hlíðarfjalls. Hægt verður að kaupa vasakortin á netinu ásamt lyftumiða og sækja í sölulúgu í miðasölu. Einnig verða vasakortin seld hjá N1 á Akureyri, Leirunesti og Veganesti.

Vetrarkorsthafar eru þó undanskildir tímapöntunum og geta komið þegar þeim hentar.

Þá er grímuskylda innandyra í Hlíðarfjalli sem og í biðröðum.

 


Athugasemdir

Nýjast