Höfum nýtt pásuna vel

Bjarni Fritzson reiknar með að spila með Akureyrarliðinu í kvöld.
Bjarni Fritzson reiknar með að spila með Akureyrarliðinu í kvöld.

N1-deild karla í handknattleik rúllar af stað á ný í kvöld eftir stutt landsleikjahlé. Þegar sex umferðir eru liðnar af deildinni sitja Haukar á toppnum með ellefu stig en Akureyri, Fram og FH hafa öll sjö stig í næstu sætum. Þrátt fyrir tvo tapleiki í röð, gegn Aftureldingu og Haukum, eru norðanmenn í öðru sæti deildarinnar en liðið tekur á móti Val í Höllinni í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:00.

Akureyrarliðið varð fyrir blóðtöku í síðustu viku þegar í ljós kom að hornamaðurinn Oddur Gretarsson leikur ekkert meira með liðinu í vetur vegna krossbandsslits. „Þetta er alveg skelfilegt, bæði fyrir hann og liðið,” segir Bjarni Fritzson annar þjálfari Akureyrar.

„Það er ekkert lið sem má við því að missa svona góðan leikmenn. Við reynum hins vegar að leysa þetta eins vel og við getum. Aðrir leikmenn fá núna tækifæri og þurfa að sýna hvað í þeim býr. Við erum með marga góða leikmenn sem geta leyst stöðu vinstri hornamanns. Andri Snær (Stefánsson) byrjaði tímabilið mjög vel en hefur verið að glíma við meiðsli. Bergvin (Gíslason) hefur einnig verið að leysa allar stöður vel inn á vellinum. Þannig að það eru ýmsir möguleikar í boði,” segir Bjarni.

Nánar er rætt við Bjarna í prentútgáfu Vikudags í dag.

Nýjast