Þetta var algjörlega nýtt fyrir mér og skemmtileg upplifun, segir Bjarni Fritzson annar þjálfari og leikmaður handknattleiksliðs Akureyrar. Bjarni stýrði Akureyrarliðinu af hliðarlínunni í fyrsta sinn í sigri liðsins gegn HK á útivelli sl. helgi en gat ekki spilað vegna meiðsla. Norðanmenn unnu leikinn með eins marks mun, 32-31, og eru til alls líklegir í vetur en fær Aftureldingu í heimsókn í kvöld.
Ég var mjög svekktur með að missa af þessum leik en ég setti mig bara í annan gír og þetta var afskaplega gaman, sérstaklega þar sem við unnum leikinn. Það er allt öðruvísi að standa fyrir utan og öðruvísi stress. Strákarnir voru hins vegar góðir við mig að landa sigri í mínum fyrsta leik sem ég stýri liðinu. Ég og Heimir (Örn Árnason) höfum stýrt sitthvorum leiknum í haust og í bæði skiptin höfum við unnið. Þetta lítur því ágætlega út fyrir okkur sem þjálfara, segir Bjarni léttur.
Leikur Akureyrar og Aftureldingar hefst kl. 19:00 í Höllinni.
Nánar er rætt við Bjarna í Vikudegi í dag.