Höfuðstöðvar ríkisolíufélags verði á Akureyri

Ráðhúsið á Akureyri/ljósm Hörður Geirsson
Ráðhúsið á Akureyri/ljósm Hörður Geirsson

Bæjarráð Akureyrar vill að væntanlegt ríkisolíufélag, sem halda á utan um leyfi til olíu- og gasvinnslu verði með höfuðstöðvar á Akureyri.Málið var rætt á bæjarráðsfundi í mrogun og var samþykkt bókun:

 „Bæjarráð kemur hér með þeirri hugmynd á framfæri við ríkisstjórn Íslands að höfuðstöðvar hins nýja ríkisolíufélags verði settar upp á Akureyri.

Lengi hefur verið rætt um mikilvægi þess að þegar ný starfsemi á vegum ríkisins er sett á fót sé kannað hvort staðsetja megi hana utan höfuðborgarsvæðisins. Þannig verði tryggt að atvinnustarfsemi á vegum ríkisins geti nýst til atvinnuþróunar og uppbyggingar á fleiri stöðum en einungis höfuðborgarsvæðinu þar sem nær allar ríkisstofnanir eru staðsettar fyrir.

Kjörið er að tengja skrifstofu hins nýja félags við starfsemi á sviði orku- og norðurslóðamála sem fyrir er á Akureyri.

Reynslan sýnir að umdeilt getur verið og ýmsum vandkvæðum bundið að flytja heilu ríkisstofnanirnar frá höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hyggja að byggðaþróun þegar nýjar stofnanir verða til. Við stofnun ríkisolíufélagsins gefst kjörið tækifæri til þess,“ segir í bókun bæjarráðs.

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast