Þetta er ennþá í vinnslu en ég reikna með að af þessu verði, segir Þórhallur Arnórsson, einn af eigendum Sjallans á Akureyri, aðspurður um hvort enn standi til að breyta þessum þekkta skemmtistað í hótel. Eins fjallað var um fyrr á árinu hafa fjárfestar í Reykjavík gert bindindi kauptilboð í Sjallann með það fyrir augum að breyta staðnum í hótel. Enn eigi hins vegar eftir að ná samningum við alla aðila en allt bendir þó til þess að Sjallinn heyri brátt sögunni til.
Ég á von á því að þetta gangi í gegn á endanum en það verður eflaust ekkert byrjað á neinum framkvæmdum fyrr en í vetur eða næsta vor. Ég er allavega búinn að bóka veislur út október. Aðspurður um hvenær hinsti dansinn í Sjallanum fari mögulega fram ef allt fer sem horfir segir Þórhallur: Það er ómögulegt að segja en ég reikna með að Sjallinn verði rekinn áfram fram að áramótum.
Sjallinn er um 2000 fermetrar að stærð en hugmyndin er að bæta einni hæð ofna á húsið. Gangi fyrirliggjandi hugmyndir eftir, er stefnt að því opna hótel í húsnæðinu fyrir sumarið 2013.