HÍ véfengir námsmat MA

Jón Már Héðinsson skólameistari MA gagnrýndi inntökupróf í Háskóal Íslands harðlega í ræðu sinni á skólahátíð MA í gær.  Benti hann á að með því að taka upp sérstakt þrönga mælikvarða sem slík próf ættu að mæla væri verið að gera lítið úr fjölbreyttu og umfangsmiklu námsmati í framhaldsskólum. Hann benti á að í MA væri það sérstakt markmið að meta nemendur eftir fjölbreyttari viðmiðum en tölulegum mælikvörðum, enda væri þessi mikla krafa um að geta sett töluleg gildi á alla skapaða hluti einkenni 20. aldarinnar en ekki 21. aldar.   Í þeim anda hafi framhaldsskólalögin verið sett og í þeim anda starfaði MA.  Það væri því erfitt að horfa upp á að Háskóli Íslands áformaði að taka upp prófakerfi sem gengi þvert á þessa menntastefnu með sérstökum aðgangsprófum sem væru einungis einsleitt þekkingarpróf. Með því væri reynt að stýra starfi MA inn á þrengri brautir. Þannig væri HÍ að "véfengja fjögurra ára fjölbreytt námsmat sem tæki jafnt til mælanlegra og metanlegra þátta námsins á meðan aðrir háskólar um víða veröld tækju nemendum MA fagnandi." Í gær voru brautskráðir 153 nýstúdenta. Dúx skólans varð Agnes Eva Þórarinsdóttir, hún fékk einkunnina 9,9 í 4.  bekk í vetur. Meðaleinkunn yfir heildina á stúdentsprófi var hins vegar 7,36.

Sverrir Pálsson var fulltrúi 70 ára stúdenta   við brautskráninguna og flutti hann ávarp þeirra. Sagði hann m.a. að af þeim árgangi væru nú eftirlifandi 9 stúdentar, en hann var sá eini sem var mættur á skólahátíð.

Nýjast