Hermann Karlsson ráðinn í nýja stöðu Almannavarna og lögreglu

Hermann Karlsson.
Hermann Karlsson.

Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra hafa tekið höndum saman um og ráðið Hermann Karlsson í 50% starfshlutfalli hjá hvorum aðila og mun hann hafa starfsaðstöðu á Akureyri. Verkefnið er tímabundið í fyrstu og er til næstu áramóta. Hermann, sem er aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, hefur starfað í lögreglunni í um 30 ár og frá árinu 2004 hefur hann verið aðalvarðstjóri á Akureyri og sinnt verkefnum almannavarna í ríkum mæli. Hermann mun sinna verkefnum sem tengjast almannavörnum í fullu starfi þennan tíma. Greint er frá þessu á Facebooksíðu lögreglunnar.

Á síðustu misserum hafa verkefni tengd almannavörnum verið vaxandi þáttur í starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og eins og margir þekkja þá hafa t.d. óveður, jarðhræringar og Covid verið mikið í umræðunni svo eitthvað sé nefnt í þessum málaflokki. Segir í færslu lögreglunnar að Hermann hafi komið mikið að þessum málaflokki undanfarin ár hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra og starfað í aðgerðastjórn þegar hún er virkjuð. Þá hefur hann komið að gerð viðbragðsáætlana og æfinga og átt í miklum samskiptum við aðra viðbragðsaðila á starfssvæðinu.

Helstu hlutverk sem hann mun sinna, auk þeirra sem greint er frá hér að ofan, er meðal annars að efla aðgerðastjórnir á landsvísu samkvæmt nýútkominni stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum. Þá mun hann koma að vinnu við yfirferð á viðbragðsáætlun hvað óveður varðar á landsvísu og skoða með hvaða hætti hægt sé að auðvelda viðbragðsaðilum að nálgast upplýsingar úr viðbragðsáætlunum á ögurstundu.


Athugasemdir

Nýjast