Heldur færri gestir

Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti. Mynd: Hörður Geirsson.
Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti. Mynd: Hörður Geirsson.

Heldur færra ferðafólk hefur lagt leið sína á tjaldsvæðin á Akureyri í sumar miðað við í fyrrasumar að sögn Tryggva Marinóssonar framkvæmdastjóra Útilífsmiðstöðvarinnar á Hömrum. Auk tjaldsvæðis á Hömrum hefur hann einnig umsjón með tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti. Tryggvi segir að sumarið hafi verið frekar dauft, svipaður fjöldi ferðamanna hafi verið á svæðunum og í fyrra sem var heldur lakara í heildina en sumarið þar á undan, 2010, þegar metaðsókn var.

Hann segir að maí mánuður hafi verið góður og aldrei svo margar gistinætur skráðar á tjaldsvæðunum í þeim mánuði áður. Hvítasunnan var að þessu sinni í lok maí og veðurspá fyrir svæðið lofaði góðu þannig að margir fóru greinilega í fyrstu útilegu sumarsins þá helgi. Hátt verð á eldsneyti og gott veður um land allt telur Tryggvi helstu skýringuna á að umferðin er ekki meiri norður í landi en raun ber vitni. Fólk sé ekki að fara lengra en þarf og nefnir að mikil umferð hafi verið um Suður-og Vesturland það sem af er sumri.

„Það gengur hins vegar allt vel hjá okkur og þetta er þokkalegt á báðum tjaldsvæðum,“ segir Tryggvi. Tilfinning hans sé sú að minna sé um fjölskyldufólk en oft áður. Hann segir að nokkrar stórar helgar séu eftir af sumrinu, m.a. verslunarmannahelgin en jafnan er þá margt um manninn á Akureyri. Hann væntir þess einnig að margir heimsæki bæinn í tilefni af 150 ára afmæli hans í ágústmánuði. Íslendingar hagi þó ferðalögum sínum mikið eftir veðri, sé spáin góð fyrir helgina fyrri hluta vikunnar megi búast við miklum fjölda gesta.

Tryggvi segir að Íslendingar séu í æ meira mæli farnir að nýta sér tjöld í ferðalögum. Braggatjöldin hafi verið að ryðja sér til rúms, enda séu þau létt, meðfærileg, rúmgóð og þægileg. „Auðvitað eru mjög margir landsmenn ýmist í felli-eða hjólhýsum eða tjaldvögnum en mér finnst tjöldin vera að koma sterk inn á nýjan leik,“ segir hann.

 

Nýjast