Hekluð veggverk í Deiglunni

Listakonan Hildur María Hansdóttir opnar sýningu á hekluðum veggverkum í Deiglunni, laugardaginn 28. júlí næstkomandi kl. 14:00. Sýningin ber nafnið, „Í björtu...”. Hildur byrjaði fyrir um tuttugu árum að hekla gólfmottur og á sýningunni er sköpunarþörfinni gefinn laus taumur sem þróast í myndræna sköpun. Í litapalettið reyndist auðvelt að finna efnivið á fatamörkuðum bæjarins, segir í tilkynningu.

Þetta er fyrsta einkasýningin sem Hildur heldur en frá árinu 2008 hefur hún unnið markvisst að sýningarhaldi 2012 vegna persónulegra tímamóta. Átta verk eru á sýningunni, einnig ein samklippa (collage). Opið verður aðra sýningardaga kl. 13-17 til 12. ágúst.

Nýjast