Framkvæmdir á vegum Norðurorku verða miklar á þessu ári, en alls er gert ráð fyrir að verja 690 milljónum króna til framkvæmda. Tvö verkefni eru þar fyrirferðamest, metangasstöð við Súluveg og miðlunartankur vatnsveitu í Torfdal.
Rekstur Norðurorku gengur vel, fyrirtækið stendur traustum fótum og góð afkoma skilar sér til viðskiptavina fyrirtækisins. Helgi Jóhannesson forstjóri segir að umtalsverður árangur hafi náðst í rekstri fyrirtækisins á liðnum árum sem endurspeglist í verðskrá fyrirtæksins. Verð raforkudreifingar stendur í stað á milli ára og er nú eitt það lægsta á landinu. Mikil raunverðslækkun hefur einnig orðið á heita vatninu og reyndar einnig í krónum talið miðað við það sem það fór hæst í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar. Hækkun nú um áramótin er 2,4% eða um tveggja krónu hækkun á rúmmetra og því aðeins hluti af vísitöluhækkun milli ára.
Það hefði í eina tíð þótt tíðindum sæta að Akureyringar greiði lægra verð fyrir heitt vatn en Reykvíkingar. Þegar hitaveitan norðan heiða var í hvað mestum ólgusjó urðu stundum verðbreytingar oft á ári, segir Helgi.
Heitt vatn á Arnarnesi happafengur
Það var mikið lán fyrir Norðurorku þegar vatn kom upp við boranir við Hjalteyri árið 2003 og svæðið virkjað í framhaldi af því. Er því óhætt að segja að þetta hafi verið mikill happafengur fyrir Eyfirðinga,
Það er mikilvægt byggðamál að hafa yfir að ráða nægu heitu vatni á góðu verði sem og ódýra raforkudreifingu líkt og við búum við, enda skiptirþað sköpum fyrir samkeppnishæfni svæðisins, segir Helgi.