Heimir Örn Árnason ráðinn framkvæmdastjóri GA

Heimir Örn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar. Mynd: gagolf.is
Heimir Örn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar. Mynd: gagolf.is

Heimir Örn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar (GA). Alls bárust 18 umsóknir um starfið. Heimir hefur að undanförnu starfað sem umsjónarkennari í Naustaskóla og sem handknattleiksþjálfari, auk þess að vera handknattleiksdómari í úrvalsdeild karla og kvenna.

Heimir er B.Ed. próf frá KHÍ og hefur auk þess lokið margvíslegum námskeiðum í stjórnun og þjálfun. Ásamt störfum sínum hjá Naustaskóla hefur Heimir sinnt þjálfun í öllum flokkum í handknattleik þar sem hann hefur notið virðingar fyrir sín störf.

 „Þetta er starf sem ég er gríðarlega spenntur fyrir. Mér þykir mjög vænt um GA og vil leggja mitt af mörkum til að klúbburinn vaxi og dafni áfram. Ég tek við góðu búi frá fráfarandi framkvæmdastjóra og hlakka jafnframt til góðra samskipta og samstarfs við félaga, gesti og samstarfsaðila GA.“ segir Heimir Örn Árnason á heimasíðu golfklúbbs Akureyrar.

Á heimasíðu golfklúbbsins segir að framundan séu áframhaldandi verkefni um að fjölga meðlimum í golfklúbbnum, treysta enn frekar barna- og unglingastarf og styðja við afreksstefnu hjá GA. Heimir hefur störf þann 1. mars næstkomandi.

 


Athugasemdir

Nýjast