Heimildarmyndin Steypa eftir þau Markús Andrésson og Ragnheiði Gestsdóttur verður sýnd í Flóru fimmtudagskvöldið 11. október kl. 20:00. Myndin er um íslenska samtímamyndlist. Í myndinni er fylgst með sjö listamönnum um tveggja ára skeið, þar sem þeir eru að koma undir sig fótunum heima og erlendis og tengjast hvor öðrum á ýmsan hátt. Steypa gefur innsýn í vinnuferli og viðhorf þessarar kynslóðar, sýnir hvernig hugmyndir fæðast og eru útfærðar í listaverk.
Myndin er með íslensku tali og enskum texta og tekur um klukkutíma í sýningu en eftir á verða umræður um myndina og um íslenska samtímalist. STEYPA er sýnd í samvinnu við Kvikmyndaklúbbinn KvikYndi og Lofi Productions sem framleiðir myndina og aðgangur er ókeypis.