Heilsuspillandi loft í Tónlistarskólanum á Akureyri

„Ég er einmitt með rakamæli á boðinu hjá mér og hann segir að rakastigið á skrifstofunni sé 20%, en almennt er miðað við að rakinn eigi að vera á bilinu 35 til 40%,“ segir Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. Hann segir að rakastigið sé svipað í rúmlega tuttugu stofum skólans í Menningarhúsinu Hofi.

Tónlistarskólinn á Akureyri er einn stærsti tónlistarskóli landsins en við hann starfa um 35 fagmenntaðir kennararog nemendurnir eru um 400 talsins. Lítill loftraki getur valdið ertingu í augum, á vörum og í öndunarfærum, einkum ef loftið er of heitt. Auk þess eykur lítill loftraki myndun stöðurafmagns.

„Þetta ástand hefur verið viðvarandi síðan við fluttum starfsemina í Hof árið 2009. Starfsfólkið er eðlilega ekki sátt, enda má segja með sanni að loftið sé heilsuspillandi. Nemendur hafa ekki kvartað við okkur, enda eru þeir yfirleitt ekki lengi í húsinu,“ segir Hjörleifur Örn, sem hefur ítrekað rætt málið við bæjaryfirvöld. Hann vinnur nú að greinargerð um málið fyrir bæinn.

„Loftræstingin í Hofi er ekki rakastýrð, þannig að við höfum þurft að grípa til þess ráðs að kaupa rækatæki í nokkrar stofur skólans. Slík tæki eru hins vegar nokkuð dýr og fjárhagurinn hefur ekki leyft að koma fyrir slíkum tækjum í öllum stofum. Auk þess er tímafrekt að hugsa um þessi tæki, þannig að úrbóta er þörf.“

Starfsfólk skólans hefur skriflega farið fram á úrbætur. Guðríður Friðriksdóttir hjá Akureyrarbæ segir verið að kanna málið, ekki sé búið að ákveða til hvaða aðgerða veri gripið til að koma í veg fyrir vandamálið.

Yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er að stuðla að því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum bæjarinsséu til fyrirmyndar.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast