Heilsugæslulæknir ræður sig til FSA

Pálmi Óskarsson, hefur verið ráðinn í stöðu sérfræðilæknis við slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri frá 20. ágúst n.k. Pálmi lauk sérfræðiréttindum í heimilislækningum í ágúst 2009 og hefur starfað sem heimilislæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri undanfarin ár. Skammt er síðan læknaráð Heilsugæslustöðvarinnar lýsti áhyggjum af því að erfitt gæti verið að halda framtíðarlæknum á stöðinni sökum slakrar aðstöðu og vinnuálags.

Staðan sem Pálmi er ráðinn í  er ný stöða á slysa- og bráðamóttöku sem verður til reynslu í 6 mánuði og fylgir stöðunni m.a. þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsókna- og gæðavinnu út frá starfsemi slysa- og bráðamóttöku. Pálmi tók kandidatsár sitt  á FSA og þekkir vel til starfa innan Sjúkrahússins á Akureyri. 

Nýjast