Heil umferð í Pepsi-deild kvenna í dag

Heil umferð fer fram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í dag og verður stórleikur dagsins á Þórsvelli þar sem heimamenn í Þór/KA taka á móti ÍBV kl. 15:00. Þór/KA hefur sextán stig  á toppnum en ÍBV hefur tólf stig í þriðja sæti og því um toppslag að ræða. Einnig mætast Valur og FH, Selfoss og Fylkir, KR og Breiðablik og Stjarnan og Afturelding.

Nýjast