Heiðar enn ófærar, mokstur víða hafinn

Kort Vegagerðarinnar klukkan 07:45
Kort Vegagerðarinnar klukkan 07:45

Mokstur er hafinn á helstu leiðum fyrir norðan, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Á Norðurlandi vestra er greiðfært úr Hrútafjarðarbotni í Blönduós. Þæfingur er á Þverárfjalli. og ófært frá Hofsós í Siglufjörð og yfir Öxnadalsheiði annas er hálka í Skagafirðinum.

Norðaustanlands er ófært um Víkurskarð og Mývatnsöræfi. Mokstur er hafin á öðrum helstu leiðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Sandvíkurheiði.

Veðurspáin fyrir Norðurland eystra:

Norðaustan 10-18 m/s, hvassast á annesjum. Slydda eða snjókoma. Norðaustan 5-13 á morgun og éljagangur. Frostlaust við sjóinn en annars vægt frost.

Nýjast