Hátt í 600 manns án atvinnu á Norðurlandi eystra

Akureyri
Akureyri

285 karlar voru að jafnaði án atvinnu á Norðurlandi eystra á nýliðnu ári og 306 konur. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar. Flestir voru á atvinnuleysisskrá í janúar, febrúar og mars, hátt í áttahundruð manns í hverjum mánuði.

Í lok desember voru liðlega sjöhundruð manns á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra. Flestir eru búsettir á Akureyri, 449 manns.  Á Dalvík voru á sama tíma 66 íbúar án atvinnu og 44 íbúar í Fjallabyggð.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast