Almannavarnir hafa sent frá sér tilkynningu á Facebook vegna jarðskjálftahrinunnar. Í henni segir að erfitt sé að segja fyrir hve lengi þessi skjálftahrina muni standa yfir né er hægt að útiloka fleiri skjálfta af stærðinni 4 eða yfir þá stærð. Um klukkan 01:30 reið yfir skjálfti sem mældist um 5 á Richter. Áður hafði skjálfti rétt undir fjórum stigum riðið yfir. Bergþóra S. Þorbjarnardóttir sérfræðingur á sviði jarðvár segir að engin hætta sé á ferðum, þ.e. ekki hætta á eldsumbrotum.