Í dag fóru fyrstu hópar sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar á hálendið til aðstoðar innlendum sem erlendum ferðamönnum. Hópur lagði upp frá Olís stöðinni við Tryggvabraut á Akuryeri ásamt raunar líka frá Borganesi og Reykajvík.
Þetta er sjöunda sumarið sem Hálendisvaktin er starfrækt og líklega aldrei eins mikil þörf á henni og nú. Rúmlega 20% fjölgun ferðamanna það sem af er ári er staðreynd og það stefnir í metsumar í ferðaþjónustu og því miður höfum við verið minnt á það undanfarnar vikur með tíðum slysum að ekki er vanþörf á Hálendisvakt björgunarsveita.
Hálendisvaktin verður starfrækt á fjórum stöðum á hálendinu eins og áður allt fram til loka ágúst. Síðast sumar bárust 1.204 tilvik inn á borð hópanna á Hálendisvakt.
Allir þurfa að leggja lið og við ætlar Landsbjargarfólk að afhenda ferðalöngum um allt land fróðleik á morgun og hvetja til slysalauss ferðasumars. Um 200 hundruð sjálfboðaliðar okkar verða á Olís stöðvum um land allt.