Hagnaður Akureyrarbæjar hálfur milljarður á næsta ári

Ráðhúsið á Akureyri/mynd Hörður Geirsson
Ráðhúsið á Akureyri/mynd Hörður Geirsson

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár fór fram í bæjarstjórn í gær. Í rekstrarreikningi samstæðunnar er gert ráð fyrir að tekjur verði rúmlega 18,1 milljarðar en rekstrargjöld fyrir utan fjármagnsgjöld rúmlega 16 milljarðar. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð um 535 milljónir króna, þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsgjalda. Þegar eingöngu er horft til reksturs sjálfs bæjarsjóðs er niðurstaðan jákvæð um 22,4 milljónir króna.

Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir fjárhagsáætluninni.

„Þrátt fyrir að fjárhagsstaða bæjarins sé sterk er verkefnið stórt sem fyrr, reksturinn er umsvifamikill og ávallt verið að leita leiða til að hagræða í rekstrinum og straumlínulaga hann eins og unnt er.  Mörg spennandi verkefni eru framundan á næstu árum sem gefur okkur ástæðu til þess að horfa bjartsýn fram veginn.  Ber þar fyrst að nefna Vaðlaheiðargöng, sem munu hafa gríðarlega góð áhrif á svæðið, hvort sem er á framkvæmdatímanum eða þegar við erum farin að aka í gegnum þau að staðaldri.“

Sorphiðugjöldin hækka á næsta ári um 10 %

Gert er ráð fyrir að útsvarið verði óbreytt. Þá er sömuleiðis gert ráð fyrir að fasteignagjöldin verði óbreytt, en að sorphirðugjaldið hækki um 10 %. Með þessari hækkun er gjaldið standi undir 87% af áætluðum kostnaði við sorphirðu, endurvinnslu og eyðingu.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast