ÁTVR hefur fallið frá þeim áformum að byggja við Vínbúðina við Hólabraut á Akureyri. Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að ástæðurnar séu m.a. andstaða bæjarbúa við stækkun og að sala áfengis hafi minnkað undanfarin ár. Hún segir að eins og staðan sé í dag, sé gert ráð fyrir því að Vínbúðin verði áfram við Hólabraut. Nánar verður fjallað um málið í Vikudegi á morgun,