Hætt við að búfénaður sé víða í fönn

Bændur hafa áhyggjur af fénaði
Bændur hafa áhyggjur af fénaði

„Það hefur verið töluvert um að bændur hafi haft samband við okkur í morgun,“ segir Ólafur Vagnsson ráðunautur hjá Búgarði á Akureyri. Í kjölfar illviðrisins í gær er óttast um afdrif fjölda sauðfjár norðanlands, þar sem veðrið var verst.

„Menn hafa áhyggjur af fénaði á Flateyjardaldalsheiði, en þar hefur ekkert verið smalað enn sem komið er. Hætt er við að ástandið þar sé ekki gott, fé er hugsanlega þar í fönn. Við fengum upplýsingar um kindur í Öxnadal í morgun, sem virtust nánast bjargarlausar. Svipaða sögu er að segja um Hörgárdalinn, maður hefur áhyggjur af búfénaði á þeim slóðum,“ segir Ólafur Vagnsson. Bændur munu því hafa í nogu að snúast í dag við að huga að fé sínu.  Landssamtök sauðfjárbænda hvetja bændur til að leita sér aðstoðar við að gæta að fénu, eftir því sem þörf er á.

Nýjast